Spjallmenni Sýnar (STÝNA)
Netspjall og spjallmenni Sýnar eru ætluð fyrir fyrirspurnir og aðstoð við notendur með skriflegum hætti.
Notendum spjallmennisins er bent á að gefa ekki upp upplýsingar sem teljast viðkvæmar, eins og til að mynda greiðslukortaupplýsingar og lykilorð.
Óski notandi eftir samtali við starfsmann verða samskipti notanda við spjallmennið aðgengileg þeim starfsmanni sem tekur við samskiptunum innan Sýnar. Óheimilt er að endurbirta þær upplýsingar sem fram koma í netspjalli og frá spjallmenni, dreifa þeim, fjölfalda eða afrita þær með nokkrum hætti. Þá er jafnframt óheimilt að birta ólögmætt eða ósæmilegt efni í netspjalli og spjallmenni Sýnar. Notendum er bent á að fara aldrei frá opnu netspjalli.
Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem safnast í tengslum við notkun spjallmennis og netspjalls er nauðsynleg í eftirfarandi tilgangi:
Til þess að veita notendum betri þjónustu og svara fyrirspurnum með texta eða rödd.
Til þess að þróa og þjálfa spjallmennið svo að það geti veitt fleiri og áreiðanlegri svör.
Til þess að þróa og bæta þjónustu í gegnum netspjall.
Til þess að tryggja rekjanleika viðskiptafyrirmæla.
Til þess að tryggja öryggi viðskiptavina og Sýnar.
Samtöl eru vistuð í afmarkaðan tíma í þeim tilgangi að þróa og uppfæra virkni og gæði spjallmennisins. Fari fram vinnsla persónuupplýsinga í samtalinu telst Sýn ábyrgðaraðili vinnslunnar í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og tryggir þar með m.a. öryggi upplýsinganna í samræmi við Persónuverndarstefnu Sýnar.
Sýn ber hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum eða svörum sem birt eru eða vísað er til í spjallmenni Sýnar né á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á spjallmenni Sýnar. Einnig undanskilur Sýn sig ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að spjallmenni Sýnar sé óaðgengilegt eða ónothæft, hvort sem er um skemmri eða lengri tíma.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



