Skilmálar um fjarskiptaþjónustu Sýnar
I. Almennt
1. Eftirfarandi skilmálar gilda fyrir alla fjarskiptaþjónustu, þ.m.t. sjónvarpsþjónustu, sjónvarpsdreifingu og áskriftarsjónvarp sem Sýn veitir nema ef sérákvæði í sérstökum skilmálum eða samningum mæli á annan veg. Sá sem nýtur þjónustu Sýnar skuldbindur sig við undirritun eða skuldbindingu samnings að hlíta þeim skilmálum sem gilda um notkun þjónustu fyrirtækisins á hverjum tíma.
2. Sýn áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum og þjónustum. Breytingar eru kynntar á vefsíðunni syn.is/breytingar með a.m.k. mánaðar fyrirvara áður en þær taka gildi.
3. Fjarskiptasambandi er venjulega ekki komið á við nokkra húseign, nema húseigandi leyfi endurgjaldslaust að koma fyrir strengjum og öðrum fjarskiptabúnaði í húsi og á lóð. Ber þeim sem óskar eftir þjónustunni að afla leyfis húseiganda.
4. Við undirritun samnings um símaþjónustu fær áskrifandi úthlutað símanúmeri nema ef um númeraflutning er að ræða og heldur þá áskrifandi áður úthlutuðu númeri. Til þess getur komið að Sýn þurfi nauðsynlega að breyta símanúmeri áskrifanda en mun þá leitast við að sem minnst óþægindi verði vegna þess. Áskrifandi þarf að óska sérstaklega eftir númeraleynd, læsingum og annarri aukaþjónustu sem í boði er.
5. Vilji áskrifandi framselja þjónustusamning sinn við Sýn til þriðja aðila skal hann sækja um það skriflega. Áskrifanda ber að greiða öll gjöld vegna notkunar á þjónustu til þess dags sem framsalið er samþykkt af hálfu Sýn.
6. Sýn getur framselt réttindi og skyldur samkvæmt þjónustusamningi við áskrifanda til þriðja aðila sem getur veitt sambærilega fjarskiptaþjónustu.
7. Sýn ber ekki ábyrgð á því að fjarskiptasamband rofni um stund. Sýn mun þó ávallt leitast við að koma á fjarskiptasambandi að nýju sem fyrst og viðhalda gæðum þjónustunnar. Sýn ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna verða á rekstri fjarskiptanetsins, hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra utanaðkomandi þátta.
8. Áskrifendum fjarskiptaþjónustu er skylt að fara vel með allan búnað í eigu Sýn sem þeir hafa til afnota, og eru þeir bótaskyldir á öllu því, sem aflaga fer og stafar ekki af eðlilegu sliti, svo og öllu því, er glatast úr þeirra vörslu í þessum efnum.
9. Sýn hefur heimild til að safna upplýsingum frá fjarskiptabúnaði sem áskrifandi hefur fengið úthlutað hjá Sýn, t.d. netbeina, myndlykla og símtækja, til að mæla gæði þjónustu sem og ástand búnaðar. Sýn áskilur sér rétt til að gera þær uppfærslur og breytingar sem þörf er á til að tryggja besta virkni búnaðar áskrifanda.
10. Ef í ljós kemur að notkun áskrifanda hefur slæm áhrif á afgreiðslu fjarskiptaneta eða felur í sér misnotkun á búnaði og/eða þjónustu Sýnar getur félagið neyðst til að synja áskrifanda um fjarskiptaþjónustu um stundarsakir eða til frambúðar. Hið sama á við ef áskrifandi veldur, af ásettu ráði eða með vítaverðu gáleysi, skemmdum á fjarskiptaneti og/eða búnaði Sýnar. Hið sama á enn fremur við ef veittar eru rangar upplýsingar sem eru til þess fallnar að hafa áhrif á gerð og gildi þjónustusamnings milli áskrifanda og Sýn. Ef synjun á fjarskiptaþjónustu um stundarsakir er á ábyrgð áskrifanda greiðir hann engu að síður áfram mánaðargjald til Sýn. Skylda þessi fellur niður ef annar hvor aðili segir þjónustusamningnum upp.
11. Sýn áskilur sér rétt til að mæla heildarnotkun viðskiptavinar m.t.t. mínútna, SMS og gagnamagns. Sé áskrifandi á þjónustuleið með ótakmörkuðu gagnamagni áskilur Sýn sér rétt til að mæla heildarnotkun áskrifanda m.t.t. til gagnamagns og grípa til viðeigandi ráðstafana, t.d. hægja á interneti, sé notkun hans óhæfileg að mati Sýn.
12. Sýn mun leitast við að vara áskrifanda við ef notkun hans breytist stórfellt á stuttum tíma án viðhlítandi skýringa þannig að grunsemdir vakni um misnotkun þriðja aðila. Fari notkun verulega fram úr hefðbundinni notkun einstakling/fyrirtækis á ákveðnu tímabili, t.d. dagsnotkun áskrifanda og líkur eru á að um misnotkun sé að ræða, áskilur Sýn sér rétt til að skoða þá fjarskiptanotkun og grípa til viðeigandi ráðstafana. Misnotkun getur m.a. falist í því að fjarskiptaþjónusta sé nýtt til tekjuöflunar fyrir þriðja aðila (sviksamleg háttsemi), þ.e. með framköllun símtala eða skilaboða með sjálfvirkum hætti eða með aðstoð tölvu og/eða öðrum rafrænum búnaði. Ráðstafanir Sýnar til að bregðast við misnotkun kunna að felast í tafarlausri lokun fjarskiptaþjónustu áskrifanda.
13. Sýn mun safna saman og vinna úr persónuupplýsingum í skilningi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, en nánari ákvæði um meðhöndlun persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Sýnar, sem telst óaðskiljanlegur hluti skilmála þessara.
14.
Sýn er umhugað um persónuvernd, við tökum hlutverk okkar alvarlega og leggjum ríka áherslu á að varðveita persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög og reglur. Með persónuverndarstefnu þessari viljum við gera þér grein fyrir hvernig söfnun, geymsla og annarri vinnslu persónuupplýsinga er háttað hjá okkur. Sýn vinnur aðeins með persónuupplýsingar þínar í lögmætum tilgangi og ýmist samkvæmt lagaskyldu, með upplýstu samþykki þínu eða á grundvelli lögmætra hagsmuna sem við gætum. Hægt er að sjá persónuverndarstefnu Sýnar á syn.is.
15. Sýn kann að taka upp þjónustusímtöl til að geta sannreynt efni þeirra komi upp ágreiningur milli aðila. Öll hljóðritun símtala er í samræmi við ákvæði laga og reglna. Skoðun og afhending upptaka er aðeins heimil ákveðnum starfsmönnum Sýn og lögbærum aðilum s.s. Lögreglu eða eftirlitsstofnunum í samræmi við fyrirmæli laga.
16. Verðskrá Sýnar yfir notkun erlendis innan EES svæðisins tekur mið af reglugerð um alþjóðlega reikiþjónustu á almennum farnetum innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 1588/2022, með síðari breytingum. Sýn áskilur sér rétt til þess að grípa til takmarkana á inniföldu gagnamagni og viðbótargjaldtöku innan EES svæðisins í samræmi við ákvæðið um sanngjarna notkun (e. Fair usage policy) í fyrrnefndri reglugerð.
17. Sýn gerir ráð fyrir að viðskiptavinir séu með heimilisfesti á Íslandi og ferðist til annarra landa í tímabundnum ferðalögum (e. periodic travel). Sé notkun farsímaþjónustu meiri erlendis heldur en heima fyrir í lágmarki fjóra mánuði í röð áskilur Sýn sér rétt til þess að grípa til viðbótargjaldtöku innan EES svæðisins í samræmi við ákvæðið um sanngjarna notkun (e. Fair usage policy) í fyrrnefndri reglugerð. Sýn áskilur sér rétt til þess að loka á SIM-kort komist upp um ósamþykkta endursölu á númerum erlendis.
18. Um kaup á sjónvarpsáskriftum Sýnar gilda í öllum tilfellum áskriftarskilmálar Sýnar hvort sem viðskiptavinur kaupir þjónustuna í verslunum Sýnar, þjónustuveri Sýn eða á öðrum sölustöðum.
19. Veltuafsláttur er tegund afsláttarkjara sem er hluti af verðskrá Sýnar og er ætluð stærri kaupendum á fjarskiptaþjónustu. Undanþegin þeim afsláttarkjörum er bein endursala á þjónustu, þar með talið (en ekki eingöngu), þjónustunúmer og gjaldanúmer eða aðgangsgjöld eða önnur leigugjöld grunnnetsfjarskiptadreifiveitna.
20. Sýn áskilur sér rétt að færa viðskiptavin í áskriftarleið sem samræmist notkun hans. Fari viðskiptavinur í áskrift yfir innifalið gagnamagn er hann færður í leið sem samræmist notkun hans. Þegar viðskiptavinur er stækkaður tekur sú breyting gildi strax. Viðskiptavinur getur óskað þess að fara aftur í fyrri áskriftarleið en slík breyting tekur gildi næstu mánaðarmót á eftir.
21. Með samþykki skilmála þessara veitir áskrifandi Sýn rétt til þess að hafa samband við viðskiptavini sína í viðskiptalegum tilgangi, svo sem til að auka þjónustustig, óháð skráningu þeirra í símaskrá. Viðskiptavinum er ávallt frjálst að afþakka slík samskipti af hálfu Sýn og skal það þá gert með skriflegum hætti.
II. Greiðsluskilmálar
1. Gjald fyrir fjarskiptaþjónustu fer eftir gildandi verðskrá sem Sýn gefur út á hverjum tíma og er aðgengileg á vefsíðunni
. Allar breytingar á verðskrá sem felur í sér umtalsverðar hækkanir umfram verðlagsþróun mun Sýn tilkynna áskrifendum með minnst eins mánaðar fyrirvara, eftir atvikum á útsendum reikningum, og getur áskrifandi þá sagt þjónustusamningnum upp innan þess tíma.
2. Áskrifandi skal greiða fyrir útskriftagjald reiknings samkvæmt gildandi gjaldskrá Sýnar. Áskrifandi getur einnig óskað eftir að reikningur skuldfærist á greiðslukort og greiðir fyrir það útskriftargjald samkvæmt gildandi verðskrá Sýnar. Áskrifandi greiðir fyrir birtingu kröfu í heimabanka samkvæmt gildandi verðskrá Sýnar.
3. Áskrifandi ber fulla ábyrgð á greiðslum til Sýn vegna notkunar sem á sér stað á þjónustu eða búnaði, óháð því hvort áskrifandi hafi heimilað notkunina eða ekki. Ef áskrifandi glatar fjarskiptabúnaði ber honum að tilkynna Sýn um það tafarlaust. Áskrifandi er ábyrgur fyrir allri notkun búnaðarins og þjónustu honum tengdum, þar til slík tilkynning hefur borist Sýn.
4. Reikningstímabil vegna fjarskipta miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok mánaðar. Eindagi reikninga er 2. virki dagur þar næsta mánaðar, gjalddagi er 7 dögum fyrr. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal áskrifandi greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með gjalddaga til greiðsludags, auk þess sem gjald vegna innheimtuviðvörunar leggst á kröfu við útsendingu 2 dögum eftir eindaga.
5. Sýn er heimilt að synja áskrifanda um þjónustu þegar liðnir eru 30 dagar frá eindaga skuldar án þess að hún hafi verið greidd nema ef um er að ræða talsímaþjónustu.
6. Þegar krafa hefur verið send frá Sýn til innheimtufyrirtækis ber áskrifanda að snúa öllum sínum samskiptum og greiðslum til viðkomandi innheimtufyrirtækis.
7. Heimilt er að loka fyrir talsímaþjónustu áskrifanda þegar liðnir eru 30 dagar frá gjalddaga/eindaga skuldar án þess að hún hafi verið greidd, þó að undangenginni skriflegri aðvörun a.m.k. mánuði fyrir lokun. Fyrsta mánuð eftir lokun talsímaþjónustu skal vera opið fyrir innhringingu í áskrifanda. Jafnframt skal áskrifandi geta hringt í neyðarnúmerið 112.
8. Ef greiðsla fyrir fjarskiptaþjónustu hefur ekki borist innan sex mánaða frá gjalddaga/eindaga áskilur Sýn sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavina. Sýn áskilur sér einnig rétt til að eyða gögnum, t.a.m. aukanetföngum, vegna þjónustu sem ekki er reikningsfært fyrir ef þjónustan hefur ekki verið notuð í 6 mánuði samfleytt.
9. Ef áskrifandi hefur athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær án tafar og eigi síðar en á gjalddaga/eindaga. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.
III. Uppsögn
1. Báðir aðilar geta sagt upp þjónustusamningi með minnst eins mánaðar fyrirvara, nema þar sem sérákvæði gilda, og skal uppsögnin vera skrifleg. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Sýnar í síma 1414 eða með öðrum skýrum hætti. Öll ábyrgð á að slíkar tilkynningar berist til Sýnar á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda. Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningatímabils, þann 1. hvers mánaðar. Öll vinnsla með fjarskiptaupplýsingar áskrifanda lýkur við uppsögn samnings.
2. Segi viðskiptavinur notkun Ljósleiðara upp þarf uppsögn að hafa borist eigi síðar en 15. dag mánaðar til þess að hún taki gildi um næstu mánaðarmót. Berist hún á 16. degi mánaðar eða síðar tekur hún gildi um þar næstu mánaðarmót. Uppsögn á öðrum aðgangsgjöldum en aðgangsgjaldi Ljósleiðara er í samræmi við 1. grein uppsagnarskilmála Sýnar.
3. Áskrifendur á einstaklingsmarkaði eiga rétt á því að segja þjónustusamningi fyrirvaralaust upp án greiðslu skaðabóta þegar þeir fá tilkynningu um fyrirhugaða breytingu á skilmálum. Áskrifendur á einstaklingsmarkaði hafa eins mánaðar uppsagnarfrest áður en breytingar taka gildi.
4. Við uppsögn á samningi ber áskrifanda að skila án tafar búnaði í eigu Sýn. Sýn getur þó heimilað áskrifanda að halda búnaði í ákveðin tíma gegn því að áskrifandi haldi áfram að borga leigu á búnaði. Ef áskrifandi getur ekki af einhverjum orsökum skilað búnaði er Sýn heimilt að gjaldfæra áskrifanda um upphæð sem nemur verðmæti búnaðarins samkvæmt gildandi verðskrá Sýn.
5. Sýn er heimilt að bjóða upp á samninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig samkvæmt samningi beggja aðila. Hámarks skuldbinding á fjarskiptum eru sex mánuðir í senn. Ef áskrifandi segir upp slíkum samningi á samningstíma áskilur Sýn sér rétt til að krefja áskrifanda um þau mánaðargjöld sem ógreidd eru af samningstímanum. Sé áskrift áskrifanda stækkuð á samningstímanum tekur sú breyting gildi strax. Viðskiptavinur getur óskað eftir að fara í minni áskriftarleið á binditímanum en slík breyting tekur gildi næstu mánaðarmót á eftir.
IV. Önnur ákvæði
1. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi. Getur áskrifandi sent Sýn kvörtun og eftir atvikum leitað til Fjarskiptastofu.
2. Áskrifandi er ábyrgur fyrir því að skilmálum þessum og lögum almennt sé fylgt. Um fjarskiptaþjónustu gilda lög um fjarskipti nr. 70/2022 ásamt síðari breytingum. Brot á skilmálum og reglum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
3. Áskrifandi veitir Sýn með undirskrift eða staðfestingu á samningi um fjarskiptaþjónustu umboð til að segja upp fjarskiptaþjónustu hjá öðrum þjónustuveitum.
4. Sýn nýtir sér vefkökur á heimasíðu sinni
. Nánari upplýsingar um notkun vefkaka og tilgang þeirra er að finna í skilmálum um notkun á vefkökum á
5. Sýn áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir eða hótanir af einhverjum toga.
6. Sýn áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir.
7. Áskrifandi getur gert áskriftabreytingar á þjónustunni í verslunum Sýnar, hjá umboðsaðilum um land allt, með því að hafa samband við þjónustuverið eða gegnum Mínar síður. Áskrifandi getur ávallt stækkað eða minnkað áskriftarleið sína. Sé áskriftarleið stækkuð tekur breytingin gildi samdægurs og áskrifandi greiðir hlutfallslegt gjald fyrir stækkunina á næsta reikningi. Sé áskriftarleið minnkuð þá tekur sú breyting gildi frá og með næstu mánaðarmótum.
8. Uppfyllir þjónusta ekki kröfur viðskiptavina, eða ef viðskiptavinur vill koma á framfæri kvörtun eða ábendingu er hægt að hafa samband við Sýn í netspjalli á www.syn.is eða með því að hafa samband í síma 1414. Sýn leitast við að leysa úr öllum málum eins hratt og kostur er, alla jafnan innan 14 daga frá því að erindi berst.
9. Leiðrétting á mistökum við númera- og þjónustuflutning, eða ef flutningur hefur verið framkvæmdur án samþykkis rétthafa númers/tengingar mun Sýn leiðrétta slík mistök án tafar og framkvæma í samræmi við verkferla félagsins. Vari þjónustutap lengur en einn virkan dag, frá því að Sýn hf. barst beiðni um þjónustuflutning, á rétthafi tilkall til bóta úr hendi fjarskiptafyrirtækis. Fjárhæð bóta er metin í hverju tilfelli fyrir sig og fer eftir þjónustuleið sem og verðskrá Sýnar hf. hverju sinni.
10. Takist aðilum ekki að ná sáttum um ágreining vegna þjónustu getur viðskiptavinur beint erindi sínu til viðeigandi eftirlitsaðila, t.d. Fjarskiptastofu, Neytendastofu eða því stjórnvaldi sem við á hverju sinni.
11. Sýn áskilur sér rétt til að breyta þjónustu áskrifanda ef þjónusta er tekin úr sölu eða ef notkun er óhófleg. Ekki skal framkvæma breytinguna fyrr en búið er að tilkynna hana til viðskiptavinar.
12. Í neyðarástandi, t.d. ef að sæstrengur bilar, áskilur Sýn sér þann rétt að takmarka tengingar viðskiptavina til þess að tryggja að allir áskrifendur geti fengið lágmarks þjónustu.
Skilmálar þessir gilda frá og með 9. ágúst 2023 og þar til nýir taka gildi.
Skilmálar
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



