SÝN Sjónvarp
Það finna allir eitthvað skemmtilegt að glápa á hjá Sýn.
SÝN+ er stærsta íslenska streymisveitan og heimili hundruða klukkustunda af fjölbreyttri og vandaðri dagskrá. Þar finnur þú úrval af íslenskum þáttaröðum, skemmtiþáttum, heimildarmyndum og kvikmyndum – bæði glænýtt efni og sígilda íslenska sjónvarpsdagskrá sem margir vilja sjá aftur og aftur. Auk íslenskrar dagskrárgerðar býður SÝN+ upp á fjölbreytt úrval erlendra þáttaraða og kvikmynda - bæði frumsýningar á nýju efni og vinsælt klassískt efni. Fyrir börnin er úrvalið ekki síðra - bæði íslenskt barnaefni og vinsælt erlent barnefni með íslensku tali. SÝN+ er fyrir alla - hvort sem þú vilt detta í nýja seríu, horfa á kvikmynd með fjölskyldunni eða finna skemmtilegt og öruggt efni fyrir yngstu áhorfendurna.


Sjónvarpsstöðin SÝN er hjartað í beinni dagskrá Sýnar – með íslensku afþreyingarefni, fréttum og þáttum sem halda fólki tengdu við það sem skiptir máli. Á hverju kvöldi kl. 18:30 eru fréttir á dagskrá, í kjölfarið koma íþróttafréttir og fjölbreytt dagskrá fram eftir kvöldi. SÝN er fyrir þá sem vilja fylgja taktinum – í rauntíma – og njóta dagskrár sem sameinar fréttir, afþreyingu og menningu kvöldsins.



SÝN Sport er heimavöllur þeirra sem fylgjast með íþróttum. Yfir 2.000 beinar útsendingar á ári, hágæða dagskrárgerð og íslensk umfjöllun - allt frá efstu deildum í íslenskum fótbolta og körfubolta til skærustu stjarnanna í ensku úrvalsdeildinni og meistaradeild evrópu. Íslenskar íþróttir skipa sértakan sess á SÝN Sport - með beinum útsendingum frá íþróttum sem skipta máli. Áhorfendur sitja því í besta sætinu þegar leikurinn hefst. Hvort sem þú ert harður stuðningsmaður eða nýtur þess að horfa á stóru stundurinar með fjölskyldunni, þá er SÝN Sport staðurinn til að vera á þegar það gerist.



Viaplay sameinar það besta úr tveimur heimum: afþreyingarefni og íþróttaviðburði. Hér finnur þú vandaðar þáttarseríur, margverðlaunaðar kvikmyndir og glæpasögur sem halda þér við skjáinn – ásamt fjölskylduvænu barnaefni og sígildum myndum sem gaman er að sjá aftur. Fyrir íþróttaáhugafólk býður Viaplay upp á útsendingar frá Formúlu 1, FA Cup, Bundesliga og margt fleira. Hvort sem þú vilt skella þér í seríumaraþon, horfa með börnunum eða fylgjast með stóru stundunum í beinni – þá finnur þú það allt á Viaplay. Viaplay Total er partur af Sportpakkanum og fylgir einnig Sýn Sport erlent. Viaplay kvikmyndir og þættir fylgir pökkunum Góður og Betri og Viaplay Total fylgir pakkanum Bestur.




Sjónvarpsapp Sýnar
Sjónvarpið þitt er ekki lengur bundið við stofuna! Með sjónvarpsappi Sýnar geturðu horft á þætti, kvikmyndir og íþróttir hvar sem er – í símanum, spjaldtölvunni, sjónvarpinu eða tölvunni. Appið er fáanlegt í Android og iPhone tækjum, sem og í Android TV, Apple TV og Amazon Fire. Þú getur líka horft beint í tölvunni á sjonvarp.syn.is.
Og það er fleira á leiðinni – útgáfa fyrir Samsung og LG sjónvörp er væntanleg.



SÝN Sjónvarp
Sýn sjónvarp veitir þér aðgang að öllum opnum íslenskum stöðvum með möguleika á yfir 50 stöðvum í áskrift. Einnig er aðgangur að Leigunni með yfir 4.000 titlum ásamt frelsisefni sjónvarpsstöðvanna og Tímavél.
2.490 kr.
kr./mán

Leigan
Sýn sjónvarp veitir þér aðgang að leigu Sýnar þar sem þú finnur fjölmargar bíómyndir fyrir alla fjölskylduna. Spenna, drama, skemmtun eða gaman? Þú ræður því alveg!

Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



