Skilmálar um GSM Frelsi
Með virkjun Frelsiskortsins samþykkir notandinn að fara eftir almennum skilmálum Sýnar ásamt eftirfarandi skilmálum um GSM Frelsi.
Gildistími Almennra stakra áfyllinga
1. Virk inneign (almenn stök áfylling) – 0 til 6 mánuðir. Hægt er að fylla á Frelsið t.d. beint úr símanum með greiðslukorti eða á vef Sýnar. Eftir að Frelsið hefur verið keypt er inneignin virk í 6 mánuði frá síðasta rukkaða símtali/SMSi. Notandi getur á því tímabili móttekið símtöl þó engin inneign sé eftir.
2. Óvirk inneign (almenn stök áfylling) – 6 til 9 mánuðir. Ef að Frelsisnúmerið hefur ekkert verið notað undanfarna 6 mánuði er lokað fyrir hringingar frá númerinu. Notandi getur þó tekið við símtölum í allt að 3 mánuði. Ef fyllt er á Frelsið innan þriggja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar er hægt að endurheimta inneignina sem eftir var og opna fyrir úthringingar.
3. Töpuð inneign (almenn stök áfylling) – 9 til 12 mánuðir. Ef ekki er fyllt á Frelsið innan þriggja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar tapast inneignin sem eftir var á Frelsinu og lokað er fyrir alla notkun. Hægt er að virkja Frelsið með því að fylla á það innan þriggja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun en eldri inneign er fyrnd. Ef ekki er fyllt á Frelsið innan þriggja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun áskilur Sýn sér þann rétt að endurheimta símanúmerið og endurúthluta því.
4. Tilboðsinneignir, gagnamagnspakkar og ávinningar þeirra gilda í 30 daga frá virkjun. Eftir 30 daga fyrnist inneignin, ef einhver er. Inneignir, gagnamagnspakka og ávinninga tilboða er ekki hægt að færa á milli númera. Ef númerinu er sagt upp eða það flutt frá Sýn fyrnast allar inneignir, gagnamagn og ávinningar.
5. Krakkakort er í boði fyrir börn (18 ára og yngri) viðskiptavina Sýnar með farsíma í áskrift. Með hverju korti fylgja ótakmörkuð símtöl og SMS ásamt 2GB af gagnamagni sem gildir innanlands.
6. Óskráð Frelsisnúmer eru Frelsisnúmer sem eiga sér ekki skráða kennitölu í kerfum Sýnar. Óskráð Frelsisnúmer eiga ekki kost á því að nýta Reiki í Evrópu samkvæmt ákvæðum Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum með síðari breytingum. Ef SIM-kort er á óskráðu Frelsisnúmeri er ekki kostur á að útvega nýtt SIM-kort með sama símanúmeri né gefa upp PUK númer sé númerið tapað eða því stolið. Notandi með óskráð Frelsisnúmer á kost á því að skrá kennitölu bak við símanúmerið í verslunum Sýnar eða með því að hafa samband við þjónustuver Sýnar í síma1414.
7. Hægt er að nota Frelsi í flestum þeim löndum sem Íslendingar ferðast til. Upplýsingar um í hvaða löndum er hægt að nota Frelsið er að finna á heimasíðu Sýnar.
8. Í öðrum löndum þarf notandi að skrá sig í áskrift til þess að geta notað farsímann þar. Notandi greiðir fyrir notkunina eftir á ef hann er skráður í áskrift. Notandi skráir sig í áskrift í verslunum Sýnar eða með því að hafa samband við þjónustuver Sýnar í síma 1414. Undirskriftar er krafist en hún getur verið skrifleg eða rafræn. Í áskrift gilda almennir skilmálar um fjarskiptaþjónustu Sýnar.
9. Það er á ábyrgð notanda að kynna sér verðskrá og hvort hægt sé að nota Frelsið í þeim löndum sem notandi ferðast til.
10. Sýn áskilur sér rétt til þess að hafa samband við viðskiptavini sína í viðskiptalegum tilgangi, óháð skráningu þeirra í símaskrá.
Skilmálar þessir gilda frá og með 1. apríl 2022 og þar til nýir taka gildi.
Skilmálar
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



