Yfir 300 beinar útsendingar á SÝN Sport

23. mars 2026

300 beinar-300 beinar-img

Annasamasti tími ársins er í vændum hjá SÝN Sport en í apríl eru fyrirhugaðar meira en 300 beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum víða um heim, ásamt þeirri metnaðarfullu dagskrárgerð sem þeim fylgja.

Enski boltinn heldur áfram að rúlla en gríðarleg spenna er í bæði topp- og botnbaráttu deildarinnar sem Sunnudagsmessan, DOCZONE og Laugardagsmörkin munu gera góð skil.

Masters risamótið í golfi fer fram 8.-12. apríl en um er að ræða stærsta golfviðburð ársins. Sérstakt ánægjuefni er að SÝN Sport mun sýna fleiri klukkutíma í beinni útsendingu frá mótinu en nokkru sinni fyrr.

Besta deild karla og kvenna í fótbolta hefjast í apríl þar sem stórleikir eru á dagskrá í fyrstu umferð beggja deilda. Þá fara úrslitakeppnirnar í Bónus deildum karla og kvenna í körfubolta einnig af stað en þær hafa notið gríðarlegra vinsælda síðustu ár. Það stefnir í æsispennandi vor í íslenska sportinu.

Meistaradeildin, Evrópudeildin og Sambandsdeildin halda áfram en þá kemur í ljós hvaða lið komast áfram í undanúrslit sem hefjast í lok aprílmánaðar. Einnig verða æsispennandi leikir spilaðir í elstu og virtustu bikarkeppni heims, FA Cup, á Englandi.

„Vorið er hápunktur ársins hjá okkur á SÝN Sport og við leggjum mikla áherslu á að færa áskrifendum okkar bestu íþróttir heims með hágæða umfjöllun sem okkar öfluga teymi dagskrárgerðarfólks stýrir. Þetta er sannarlega skemmtilegasti tími ársins enda verður af nægu að taka næstu vikurnar og mánuði,” segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar.

Náðu þér í áskrift að SÝN Sport og misstu ekki af neinu. SÝN Sport er m.a. aðgengileg í gegnum Besta pakkann á syn.is og SÝN+ Allt sport. Með áskrift hefur þú aðgang að öllum þessum beinu útsendingum ásamt Viaplay og SÝN+ streymisveitunni þar sem finna má fjöldann allan af íslenskum og erlendum þáttaröðum, vönduðu talsettu barnaefni og úrval kvikmynda.

Deila

Fylgdu okkur

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificatecertificate