Vefverslun

Nýjungar frá Apple

Apple kynnti nýjustu tæki sín á árlegri haustkynningu í gær. Mesta athygli vakti iPhone Duo, fyrsti samanbrjótanlegi síminn frá Apple. Meðal nýjunga voru einnig iPhone 18 Pro og Pro Max ásamt nýjum Apple Watch og AirPods.

10. september 2026

Apple launch haust 26-Apple launc 26-img

iPhone Duo stal senunni

iPhone Duo er fyrsti samanbrjótanlegi síminn frá Apple og töluverð breyting frá því iPhone formi sem við þekkjum. Lokaður virkar hann eins og hefðbundinn sími en þegar hann er opnaður tekur við stærri skjár sem minnir meira á lítinn iPad.

Á stærri skjánum er meðal annars hægt að nota tvö öpp hlið við hlið. Hentugt fyrir þau sem vilja svara tölvupósti og horfa á TikTok á sama tíma. Síminn er búinn 48 MP myndavélakerfi og hægt er að nota ytri skjáinn til að sjá myndina á meðan hún er tekin. Samanbrjótanlega hönnunin gerir líka kleift að stilla símanum upp án þrífótar. iPhone Duo er eingöngu með eSIM og því fær gamla, góða SIM-kortið að víkja.

iPhone 18 Pro fá uppfærslu að innan

iPhone 18 Pro og Pro Max halda í kunnuglegt útlit en fá öfluga uppfærslu að innan. Þar eru myndavélin, hraðinn og rafhlöðuendingin í aðalhlutverki. Ný 48 MP Fusion-myndavél auðveldar þér að ná skýrum myndum við ólíkar aðstæður. Hún sér sjálf um stillingarnar en býður einnig upp á meiri stjórn fyrir þau sem vilja fínstilla myndatökuna. Þetta gæti mögulega fækkað þessum 47 útgáfum af sama augnablikinu í myndaalbúminu. Nýju Pro-símarnir eru hraðari, með lengri rafhlöðuendingu og ráða betur við allt frá leikjum og myndvinnslu yfir í óþarflega marga opna vafraglugga. Svarta upplýsingasvæðið efst á skjánum hefur einnig minnkað og stelur því minna plássi frá efninu sjálfu.

Apple Watch fylgist betur með þér

Apple Watch Series 12 og Apple Watch Ultra 4 fá nákvæmari heilsumælingar og öflugri tækni sem vinnur betur úr upplýsingum um svefn, hreyfingu og álag. Úrið gefur þér síðan einkunn fyrir dagsformið og hjálpar þér að meta hvort þú sért tilbúin í átök dagsins eða eigir skilið að taka því rólega.

Ultra 4 er áfram ætlað þeim sem vilja öflugt úr fyrir æfingar og útivist. Það fær lengri rafhlöðuendingu og nákvæmari staðsetningarmælingar, svo það ratar vonandi þótt þú gerir það ekki.

AirPods sem 5 hlusta með

Heyrnartólin aðlaga hljóðið sjálfkrafa að umhverfinu og lækka í tónlistinni þegar þú byrjar að tala. Loksins einhver sem hlustar þegar þú talar! Þau geta einnig þýtt samtöl á milli tungumála í rauntíma og þú getur svarað Sirrý (e. Siri) með því að kinka kolli eða hrista höfuðið….Já eða nei, án þess að segja orð.

Gervigreind fær meira vægi

Gervigreind skipar stóran sess í nýju tækjunum. Hún á meðal annars að hjálpa notendum að finna upplýsingar, vinna með myndir og leysa ýmis hversdagsleg verkefni. Raddaðstoðin Sirrý verður einnig persónulegri og á að skilja betur bæði spurningar og samhengi. Við hjá Sýn deilum svo sannarlega spennunni með Apple aðdáendum og hlökkum til að sjá hvernig iPhone Duo leggst í landsmenn og hvort hann slái jafn rækilega í gegn eins og á kynningunni.

Deila

Fylgdu okkur

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificatecertificate